Persónuvernd
Uppfært 14. september 2026
Þessi síða lýsir því hvaða persónuupplýsingum er safnað á vef Rafmagnsverkstæðis Andrésar ehf., hvers vegna, hve lengi þær eru geymdar og hvaða réttindi þú átt. Ábyrgðaraðili er Rafmagnsverkstæði Andrésar ehf., kt. 601202-2470, Strandgötu 24a, 735 Eskifirði.
Hverju er safnað
Aðeins því sem þú sendir okkur sjálf(ur) í gegnum fyrirspurnareyðublaðið. Við notum hvorki rakningarkökur, greiningartól né auglýsinganet, og vefurinn sækir ekkert efni til þriðja aðila — letur og forritasöfn eru hýst á okkar eigin þjóni.
| Upplýsingar | Nafn, netfang, símanúmer, erindi og mynd ef þú velur að senda hana |
|---|---|
| Tilgangur | Að svara fyrirspurninni og meta verkið |
| Heimild | Lögmætir hagsmunir við að svara þeim sem hefur samband |
| Geymslutími | 12 mánuðir, svo eyðist sjálfkrafa |
| Móttakendur | Starfsfólk Rafmagnsverkstæðis Andrésar. Engum gögnum er miðlað til þriðja aðila |
| Staðsetning | Á vefþjóni innan Evrópska efnahagssvæðisins |
Myndir sem þú sendir
Myndir eru endurunnar við móttöku: þær eru minnkaðar og vistaðar á nýju sniði. Við það eyðast öll lýsigögn sem sími setur sjálfkrafa í myndir — þar á meðal GPS-hnit. Við geymum því ekki hvar myndin var tekin, jafnvel þótt síminn þinn hafi skráð það.
Tæknilegar upplýsingar
Vefþjónninn skráir IP-tölu með hverri fyrirspurn. Hún er notuð til að hindra sjálfvirkt ruslpóstsflóð og til einskis annars. Vafrakökur eru aðeins notaðar til að halda innskráningu starfsfólks í innri vef; almennir gestir fá enga köku.
Réttindi þín
- Að fá aðgang að þeim upplýsingum sem við geymum um þig
- Að fá þær leiðréttar ef þær eru rangar
- Að fá þeim eytt — við eyðum þeim strax og án skilyrða
- Að andmæla vinnslunni
- Að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd
Sendu tölvupóst á rafesk@rafesk.is eða hringdu í 476 1500. Við svörum innan mánaðar, oftast samdægurs.
Breytingar
Ef þessari yfirlýsingu er breytt birtist ný dagsetning efst. Fyrri útgáfur eru geymdar og hægt er að fá þær sendar.
Rafmagnsverkstæði Andrésar